Fréttir
17.4.2009
Endurbætur á Súgfirðingasetrinu
Endurbætur á Súgfirðingasetrinu
Eins og um hefur verið rætt, þá tók stjórn Súgfirðingafélagssins í Reykjavík þá ákvörðun ásamt eigendum neðri hæðar hússins að Aðalgötu 18 Suðureyri, að skipta um járn á þaki hússins, einnig að laga múrhúð hússins að utan og mála það. Öll vinna verður gerð í sjálfboðavinnu, ( fyrir utan sérfræðiaðstoðar Spýtunnar ehf. á Ísafirði, undir stjórn Magnúsar Jónssonar ) og er áætlað að byrja á verkinu þann 01. maí nk. Allir þeir sem telja sig geta aðstoðað að einhverju leyti, hafi samband við formann Súgfirðingafélagssins í Reykjavík í síma 8635301 sem fyrst.Með þökk Form. Súgfirðingafélagssins í Reykjavík Sigurþór Ómarsson










