Fréttir
30.4.2009
Tónleikar Bjarna Ómars á Suðureyri
Tónleikar Bjarna Ómars á Suðureyri. Fréttatilkynning vegna tónleikahalds á Vestfjörðum 30. apríl – 3. maí n.k. Frá því að geisladiskur Bjarna Ómars Haraldssonar Fyrirheit kom út hafa Bjarni og Stefán Steinar Jónsson píanóleikari haldið tónleika víða um land m.a. á Ströndum, Reykjavík, Norðurlandi og í Húnavatnssýslunum. Nú er komið að því að þeir félagar heimsæki norðanverða Vestfirði. Þeir hefja leikinn á Kaffi Edinborg á Ísafirði fimmtudagskvöldið 30. apríl klukkan 22:00. Föstudaginn 1. maí eru tónleikar í félagsheimilinu á Þingeyri klukkan 16:00 og á Vagninum á Flateyri klukkan 21:00. Laugardaginn 2. maí er komið að Suðureyri við Súgandafjörð og fara þeir tónleikar fram í kirkjunni kl. 16:00. Klukkan 21:00 sama dag spila þeir svo í Einarshúsi í Bolungarvík. Síðustu tónleikarnir í þessari ferð fara fram á veitingastaðnum Ömmu Habbý í Súðavík, sunnudaginn 3 maí og hefjast þeir kl. 16:00. Þeir félagar flytja lögin af Fyrirheitum í þægilegum útsetningum fyrir píanó, kassagítar og söng og rekja tilurð texta og laga ásamt því segja frá því sem kemur upp í hugann hverju sinni. Vakinn er athygli á því að frítt er á alla tónleikana en að þeim loknum mun Bjarni selja og árita diskinn fyrir áhugasama gesti. Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Vestfjarða.










