Fréttir
30.4.2009
Sumarhátíđin 2009
Helgina 26-28 Júní ætlar Súgfirðingafélagið í Reykjavík að efna til sumarhátíðar í Miðdal, á lóð prentara og bókagerðarmanna, ca. 5 mínútna keyrsla frá Laugarvatni. Inná svæðið og tjaldstæði í 2 nætur fyrir fjölskylduna kostar alls 2000 kr.“
Dagskráin verður óhefðbundin eins og í fyrra. Meðal þess sem er í boði eru ýmsir leikir fyrir alla fjölskylduna, svo sem pokahlaup, plankahlaup, boðhlaup, reyptog, eggjahlaup og margt fleira á meðan veður leyfir. 18 holu golfvöllur er á staðnum, leiktæki fyrir börnin og stutt í sund á Laugarvatni. Allir þeir sem taka þátt í hinum ýmsu leikjum fá verðlaunapening. Salernis og sturtuaðstaða er á svæðinu.
Furðufatakeppni.
Efnt verður til furðufatakeppni sem kemur til með að standa alla helgina, allt kemur til greina svo endilega opnið fataskápana og tínið til gömlu fötin sem þið eruð hætt að nota. Með von um jákvæð viðbrögð og við sjáum sem flesta helgina 26-28 júní.
Súgfirðingafélagið í Reykjavík.










