Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

8.6.2009

Stefnir United hneppir gullið

Dagana 6. og 7. júní var haldið uppá Sjómannadaginn í Reykjavíkurhöfn. Margt var um að vera fyrir bæði börn og fullorðna. Boðið var upp á skemmtisiglingu fyrir fjölskylduna, flutt voru ávörp og aldraðir sjómenn voru heiðraðir. Fiskur og annað góðmæti var til sölu á svæðinu.

Lið Súgfirðinga, Stefnir United, tók þátt í kappróðrinum eins og undanfarin ár, sem var að þessu sinni haldin í Vesturhöfninni. Eftir stífar æfingar undanfarna viku hlökkuðu Súgfirðingarnir til að spreyta sig í bátunum enda færir í flestan sjó. Tvö stelpulið mættu til leiks þetta árið og þrjú blönduð lið. Stefnir United hneppti gullið og náði glæsilegum tíma; 2.06.86.

Í liði Stefnis voru: Eyþór Eðvarðsson, Stefán Pálsson, Kjartan Pálsson, Hulda Pálsdóttir, Atli Ómarsson, Svanur Wilcox og Gunnar Eyþórsson.

Markmiðið er sett á enn ein gullverðlaun að ári.


Auglýsingar Hægri

Myndasafn  Póstlistaskráning  Auglýsing  Auglýsing


Fréttir

Auglýsingar vinstri

Auglýsing


Slóðin þín:

Fréttir

Toppmynd


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré