Fréttir
7.10.2009
Kirkjukaffi - sunnudaginn 25. október
Hið árlega kirkjukaffi Súgfirðingafélagsins verður haldið að lokinni messu í Bústaðakirkju, sunnudaginn 25. október n.k. kl. 14.00. Prestur er sr. Pálmi Mattíasson.
Að venju óskar viðlagasjóðsnefndin eftir því við félagsmenn að vera nú dugleg eins og alltaf áður við kökugerðina! Öll framlög eru vel þegin og má koma með kökurnar frá kl. 11.00 að morgni sunnudagsins í safnaðarheimili Bústaðakirkju.
Súgfirðingar eru hvattir til að mæta vel í kirkjuna og kaffið á eftir og sýna með því samhug í verki, styrkja sjóðinn og njóta í leiðinni kræsinganna og hins góða félagsskapar sem þar er að finna.
Viðlagasjóðsnefndin.










