Fréttir
10.11.2009
Hraðsveitakeppni Súgfirðingafélagsins
Hraðsveitakeppni Súgfirðingafélagsins er nýlokið. Eftir snarpa og skemmtilega baráttu höfðu liðsmenn Esjunnar öruggan sigur. Gnæfðu þeir tignarlega yfir Hvíldarklett og Gölt í mótslok.
Fimm efstu sætin í Hraðsveitakeppninni skipuðu:
|
1. |
Esja | 488 |
| 2. | Hvíldarklettur | 452 |
| 3. | Efribær | 416 |
| 4. | Bridgstone | 404 |
| 5. | Göltur | 400 |
Sveit Esju skipuðu Finnbogi Finnbogason, Jón Óskar Carlsson, Karl Jónsson og Pétur Carlsson. Björn Guðbjörnsson afhenti spilurum Esju verðlaun í mótslok. Spilastjóri var Sigurpáll Ingibergsson.
Næsta mót Súgfirðingafélagsins er keppni um Súgfirðingaskálina, fimm kvölda tvímenningur. Er mótið haldið í níunda skipti. Spilamennska hefst kl. 18, mánudaginn 23. nóvember.










