Fréttir
4.2.2010
Aðalfundur Súgfirðingafélagsins sunnud. 07.feb. kl 15:00
60. aðalfundur Súgfirðingafélagsins verður haldinn í Smáraskóla sunnudaginn 07. febrúar kl. 15:00. Endilega fjölmennið á fundinn því okkur vantar duglegt og áhugasamt fólk til að starfa með okkur í stjórn.
Súgfirðingafélagið í Reykjavík
60. Aðalfundur
07. febrúar 2010Dagskrá:
1. Setning formanns og minnst látinna félaga (formaður)
2. Kosnir starfsmenn fundarins (formaður)
3. Fundargerð síðasta aðalfundar. ( Atli, Finney eða Unnur )
4. Skýrsla stjórnar fyrir síðasta starfsár (formaður)
5. Reikningar félagsins fyrir s.l. ár (gjaldkeri)
6. Skýrsla og reikningar viðlagasjóðs (formaður viðlagasjóðs)
7. Gjaldkeri flytur tillögu um félagsgjöld komandi árs. Tillaga stjórnar er um óbreytt félagsgjald.
8. Stjórnarkjör. ( Úr stjórn hafa gengið: Stefán Pálsson, Lilja Magnúsdóttir og Guðbjörg Guðlaugsdóttir )
Tillögur stjórnar:
Formaður (til eins árs) Atli Ómarsson
Stjórnarmenn til eins árs: Sigurþór Ómarsson, Unnur Sigríður Erlingsdóttir og Finney Rakel Árnadóttir………….og nýir til 2ja ára þegar þeir gefa kost á sér.
Viðlagasjóður: Hér eiga að vera formaður og 5 í stjórn + 5 í fjáröflunardeild.
Þessir ganga úr stjórn: Sigríður Jónasdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Særún Sigbjartsdóttir.
Tillaga stjórnar:
Áfram sitja Guðbjörg Guðlaugsdóttir, Guðrún Ásta Guðjónsdóttir, Sigurþór Ómarsson, Inga Guðmundsdóttir, Sólrún Bjarnadóttir, Þuríður K Heiðarsdóttir, Kristbjörg Unnur Sigurvinsdóttir, Kristín Einarsdóttir og nýir koma inn……….en samkvæmt skipulagsskrá Viðlagasjóðs eiga að vera formaður og 5 í stjórn og 5 í fjáröflunarnefnd.
9. Önnur mál:
- Súgfirðingasetrið. (klára að drena í kringum húsið, og alm. frágangur)
- Kolaportið.
- 60. ára afmæli félagsins og fyrirhuguð ferð vestur á Súganda í tilefni afmælisins.
10. Aðalfundi slitið.










