Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

22.6.2010

Sumarhátíđin í Miđdal

Næstu helgi, 25-27. júní nk. ætlar Súgfirðingafélagið í Reykjavík að efna til sumarhátíðar í Miðdal eins og undanfarin ár á lóð prentara og bókagerðarmanna, ca. 5 mínútna keyrsla frá Laugarvatni. Tjaldstæðið kostar 1800 kr nóttin, þriðja nóttin er frí.  Í Miðdal er glæsilegt tjaldsvæði með góðu þjónustuhúsi með salernis- og sturtuaðstöðu. Gott leiksvæði er við tjaldsvæðið þar sem eru leiktæki fyrir börn; ærslabelgur, körfuboltavöllur og minigolf.  Einnig er18 holu golfvöllur rétt hjá og stutt er í sund á Laugarvatni.  Hundahald er leyfilegt á tjaldsvæðinu, hundur skal vera í hæfilega löngu bandi (3 metrar) og eigandanum er gert skylt að þrífa upp eftir hann.  Dagskráin verður óhefðbundin eins og fyrri ár. Farið í leiki sem allir í fjölskyldunni geta tekið þátt í svo sem pokahlaup, plankahlaup, boðhlaup, reyptog, eggjahlaup og eitthvað fleira á meðan veður leyfir. Svo má nú ekki gleyma gítarspilinu, söngnum og gleðinni :)
Hlökkum til að sjá ykkur öll.

Kveðja, stjórnin


Auglýsingar Hćgri

Myndasafn  Póstlistaskráning  Auglýsing  Auglýsing


Fréttir

Auglýsingar vinstri

Auglýsing


Slóđin ţín:

Fréttir

Toppmynd


Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré