Fréttir
29.1.2012
Þorrablót Súgfirðingafélagsins
verður haldið föstudaginn 10. febrúar í Versölum við Hallveigarstíg (Iðnaðarmannahúsinu). Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00.
Miðaverð á blótið er einstaklega gott eða kr. 5.500 á manninn og fyrir þá sem komast ekki á matinn en vilja koma á dansleikinn kostar kr. 2.000. Það er hin frábæra vestfirska hljómsveit Bennni Sig og Express sem munu trylla lýðinn en húsið opnar kl. 23:30 fyrir ballgesti.
Veislustjóri kvöldsins verður Rakel Garðarsdóttir.
Rakel Sveinsdóttir fer með minni karla og með minni kvenna fer Þórður Jóhannesson.
Félagsmenn eru beðnir um að panta miða hjá stjórnarmönnum fyrir fimmtudaginn 9. febrúar (sjá símanúmerin undir http://sugandi.is/um-felagid/stjorn/) og pantanir má/skal sækja miðvikudaginn
8. febrúar í Versali, Hallveigarstíg frá 19:00 – 20:00, þar verður einnig forsala miða á sama tíma.
Nú er um að gera að safna liði og fjölmenna á blótið enda einstaklega flottur viðburður hér á ferðinni og eins og gamla máltækið segir „þar sem fleiri en tveir Súgfirðingar koma saman, mælist fjörið í desibilum.“
Sjáumst hress og kát.
STJÓRNIN










