Beint á leiðarkerfi vefsins

Súgfirðingasetrið

Aðalgata 18 efri hæð, sem er orlofsíbúð Súgfirðingafélagsins í Reykjavík, var fullbúin og tilbúin til útleigu til félagsmanna í byrjun júlí 2004. Gestabók er í íbúðinni og ber hún þess vitni hve margir hafa komið þar við og skoðað. Íbúðin er öllum þægindum búin, herbergin eru 3 og í hverju herbergi geta 5 manneskjur gist, sængur og koddar fyrir 15,  borðbúnaður er fyrir 20 manns, útvarp er í öllum herbergjum en aðeins er sjónvarp í eldhúsinu. Við hvetjum alla félagsmenn til að nýta sér þessa aðstöðu sem komin er í þorpið okkar.

Reglur um úthlutun:
Pantanir fyrir A tímabil  (1.júní - 24. ágúst) skal gera frá 10.nóvember - 18.febrúar ár hvert. Eftir 15. mars er úthlutað til þeirra sem sótt hafa um á A tímabili.  Greiða þarf fyrir úthlutða viku fyrir 1. maí, ef greiðsla hefur ekki borist verður íbúðin leigð öðrum. Greiðslur  skal leggja inn á reikning 1114 26-37, kennitala 480379-0129.

Ef fleiri en ein umsókn er um sömu vikuna skal farið eftir eftirfarandi starfsreglum.

1.  Er umsækjandi skuldlaus.

2.  Hvenær umsókn barst s.s. dagsetning umsóknar.

3.  Hvort umsækjandi hafi fengið áður úthlutað á A tímabili.

4.  Ef aðilar standa jafnir er dregið í votta viðurvist.

Eftir 15. apríl er íbúðin leigð öllum þeim sem sækja um auglýstar lausar vikur, viðkomandi þarf ekki að vera félagi í Súgfirðingafélaginu.

Elli og örorku lífeyrisþegar fá 20% afslátt á B tímabili, þó ekki um páska.

Hægt er að sækja um hjá Önnu Bjarnadóttur á netfanginu aone@fva.is, einnig er hægt að fá upplýsingar í gsm 897 5153.

Ýmsar upplýsingar:
Það sem hafa þarf með sér í húsið er: handsápa, klósetpappír, handklæði, viskastykki, borðtuskur, kaffifilter, sængurföt. Almennt gildir sú regla að gæludýr eru ekki leyfð í íbúðinni. Reykingar eru alfarið bannaðar í íbúðinni.  

Þrífa þarf vel eftir veruna í íbúðinni, tæma allt rusl út úr íbúðinni. þrífa glugga og annað gler, skúra bak við og undir öll rúm.  Þrífið ískápinn eftir notkun en ekki taka úr sambandi. Þurrka af sjónvarpi sem er í eldhúsi og takið úr sambandi við brottför.  Munið að loka gluggum við brottför.

Ekkert grill er í íbúðinni.  Svalirnar er litlar og verður að fara varlega þar, veggirnir eru ekki háir.

Núna þarf að flokka allt rusl sem kastað er í ruslatunnurnar úti, bæklingur um flokkun er í íbúðinni og á ísskápnum.

Lykill af íbúðinni er í sjoppunni N1, skila þarf lyklinum í sjoppuna fyrir kl. 14.00 á föstudegi.

GÖNGUM SNYRTILEGA UM ÍBÚÐINA:-)


Auglýsingar Hægri

Myndasafn  Póstlistaskráning  Auglýsing  Auglýsing


Súgfirðingasetrið

Auglýsingar vinstri

Auglýsing


Slóðin þín:

Súgfirðingasetrið

Toppmynd


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré