Stjórnarfundur 020309
Fundur settur 18:00 í Smáraskóla Kópavogi
Mætt: Sigurþór Ómarsson, Atli Ómarsson, Finney Rakel Árnadóttir, Unnur Sigríður Erlingsdóttir og Lilja Kristín Magnúsdóttir
Fjarverandi: Guðbjörg M. Guðlaugsdóttir og Stefán Pálsson
Dagskrá: Almennt
Rætt um að ýta á eftir Gústa með síðuna súgandi.is og fá hana í gagnið og Atli ætlar að tala við hann. Unnur orðin víg á síðuna og talað um að bæta við fleirum við. Spurning um að fá einhvern á Suðureyri til þess að gerast fastur vikulegur penni á síðunni. Athuga með það.
Aðalmál: Súgfirðingasetrið. Viðgerð
Ferð vestur til þess að laga múrskemmdir og þakið. Leita eftir tilboði með palla og því tengt. Rætt um ferðakostnað og talið best að beri beri þann kostnað alfarið sjálfir. Sigurþór búin að skoða bitana. Ætlar að hafa samband við Verkfræðiskrifstofu Vestfjarða um frekari skýringu vegna skemmda í sambandi við skýrsluna. Hópur á leiðinni vestur um mánaðarmót apríl/maí. Fá tilboð frá bæði Húsasmiðjunni og BYKO. Finney Rakel tilbúin til að tala við Harald Júlíusson rekstrarstjóra Húsasmiðjunnar á Ísafirði um tilboð svo lengi sem hann verður í því starfi. Atli og Sigurþór ætla að semja texta til að Finney geti sent til hans.
Stjórn ákveðin:
Formaður: Sigurþór Ómarsson, Varaformaður: Guðbjörg M. Guðlaugsdóttir, Gjaldkeri: Atli Ómarsson, Ritari: Finney Rakel Árnadóttir, Ritstjóri vefsíðu: Unnur Sigríður Erlingsdóttir, Meðstjórnendur: Lilja Kristín Magnúsdóttir og Stefán Pálsson.
Önnur mál: Sala í Kolaportinu. Ekkert gerst í þeim málum, ákveðið að bíða aðeins lengur. Fá allavega hluti til að standa undir kostnaði ef það verður á annað borð gert.
Karlakvöld. Skoða það mál. Veltur algerlega á húsnæði. Klárlega fjáröflun fyrir félagið. Vera meðvituð um þessa hugmynd fram á haust. Höfða til allra aldurhópa. Selja drykkjarföng, vinna gefins og það helsta að reyna að fá salinn ókeypis. Fá framfærna og góða menn til þess að setja saman góða dagskrá.
Sumarhátíð: Rætt um að hafa hana nálægt Reykjavík. Lítill tilkostnaður. Tjaldsvæði best að skoða sem fyrst. Laugarvatn ákjósanlegur staður. Sigurþór og Atli ætla að sjá um staðsetningu á hátíðinni. Athuga með seinustu helgina í júní. Athuga með söluvöru.
Heiðmörk og Sjómannadagurinn: Heiðmörk aðeins á undanhaldi, þarf að skoða reitinn.
Ákveðið að setja fundargerðir á netið. Finney Rakel tekur bókina í sína vörslu
Fundi slitið kl: 19:40










