Lög
LÖG SÚGFIRÐINGAFÉLAGSINS Í REYKJAVÍK.
1. gr. Félagið heitir Súgfirðingafélagið í Reykjavík. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr. Tilgangur félagsins er.: A) að efla og viðhalda kynningu Súgfirðinga. B) að efla og viðhalda sambandi við heimahéraðið.
3. gr. Félagsmenn geta hverjir þeir orðið, sem eru fæddir eða búið hafa í Suðureyrarhreppi, niðjar þeirra og makar.
4. gr. Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi ár hvert. Skipa hana 7 menn, formaður og sex meðstjórnendur. Ennfremur skulu kosnir tveir endurskoðendur. Formaður skal kosinn fyrst og sér í lagi. Meðstjórnendur skulu kosnir í einu lagi. Aldrei skulu fleiri en þrír stjórnarmenn ganga úr stjórn á hverjum aðalfundi. Kosning skal vera skrifleg sé þess óskað. Kosningu hljóta þeir, sem flest fá atkvæði, en séu atkvæði jöfn ræður hlutkesti.. Stjórnin skiptir með sér verkum. Á aðalfundi skal einnig kjósa í stjórn viðlagasjóðs eftir gildandi reglum.
5. gr. Formaður boðar fundi bréflega, með minnst 7 daga fyrirvara. Aðalfund skal halda í febrúar ár hvert og telst löglegur sé löglega til hans boðað. Skulu þar lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins, þar með taldir reikningar viðlagasjóðs. Í ársreikningi félagsins skal færa inn efnahagsreikning viðlagasjóðs fyrir síðastliðið starfsár.
6. gr. Skylt er að halda fundargerðarbók yfir gerðir félagsins, svo og félagaskrá. Gjaldkeri innheimtir félagsgjöld og greiðir reikninga félagsins eftir ávísun formanns, varðveitir og færir nauðsynlegustu bækur viðvíkjandi reikninghaldi félagsins. Ritari heldur gjörðarbók og varðveitir hana.
7. gr. Árgjald félagsmanna skal ákveðast á aðalfundi ár hvert og fellur þá í gjalddaga.
8. gr. Hætti félagið störfum og leggist niður, skal sjóðum þess og andvirði annara eigna varið til skógræktar í Súgandafirði.
9. gr. Lögum þessum má aðeins breyta á lögmætum aðalfundi og þarf til þess 3/4 greiddra atkvæða.










